Úthlutunarreglur
Reglur um úthlutun úr Húsafriðunarsjóði
1. gr.
Húsafriðunarsjóður
Um Húsafriðunarsjóð gilda ákvæði III. kafla laga um húsafriðun, 104/2001.
2. gr.
Úthlutanir úr Húsafriðunarsjóði
Húsafriðunarnefnd úthlutar styrkjum úr Húsafriðunarsjóði til:
a. ráðgjafar og áætlunargerðar vegna viðhalds á friðuðum byggingum.
b. viðhalds á friðuðum byggingum.
Húsafriðunarnefnd er einnig heimilt að veita styrki til:
c. ráðgjafar og áætlunargerðar vegna viðhalds á öðrum byggingum en friðuðum sem að dómi Húsafriðunarnefndar hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi,
d. viðhalds á öðrum byggingum en friðuðum sem að dómi Húsfriðunarnefndar hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi,
e. gerð bæja- og húsakannana,
f. útgáfu bæja- og húsakannana.
g. byggingarsögulegra rannsóknarverkefna og útgáfu rita um þær.
Áður en til styrkveitingar kemur metur Húsafriðunarnefnd hvort hún telji verkefni styrkhæf og ákveður upphæð styrks. Húsafriðunarnefnd metur styrkhæfi m.t.t. friðunar, byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika, tæknilegs ástands og varðveislugildis. Sé umsókn um styrk úr Húsafriðunarsjóði ekki skilmerkilega útfyllt verður viðkomandi umsókn ekki tekin til greina.
Styrkjum er úthlutað til eins árs í senn. Nýti styrkþegi sér ekki úthlutaðan styrk á sama ári og honum er úthlutað, fellur styrkur niður. Heimilt er, vegna sérstakra aðstæðna, að veita frest til greiðslu styrks til 1. júní á næsta ári á eftir úthlutun, enda hafi borist formleg beiðni þess efnis frá styrkþega til Húsafriðunarnefndar fyrir lok úthlutunarárs.
Ákvörðun Húsafriðunarnefndar um styrkveitingu og upphæð styrks er endanleg.
Úthlutun styrkja skal að öðru jöfnu ákveðin fyrir 1. mars ár hvert.
3. gr.
Auglýsing um styrki Húsafriðunarsjóðs
Húsafriðunarnefnd skal auglýsa í septembermánuði ár hvert eftir umsóknum til Húsafriðunarsjóðs í dagblöðum, Lögbirtingarblaði, Sveitarstjórnarmálum og á heimasíðu sinni. Ennfremur auglýsir nefndin eftir umsóknum í landshlutablöðum og ljósvakamiðlum eftir því sem þörf þykir.
4. gr.
Almennt um umsóknir
Umsóknum um styrki úr sjóðnum skulu fylgja greinargóðar upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir á þar til gerðum umsóknareyðublöðum. Séu umsóknir ekki í samræmi við kröfur getur Húsafriðunarnefnd vísað þeim frá. Umsóknir skulu berast Húsafriðunarnefnd eigi síðar en 1. desember ár hvert.
Sé fyrirhugað að framkvæma verk sem sótt er um styrk til á mörgum árum skal umsækjandi gera grein fyrir áfangaskiptingu við verkið í heild sinni og kostnaði við þá. Heimilt er að sækja um styrki fyrir aðra áfanga við næstu styrkveitingu. Húsafriðunarnefnd er, með styrkveitingu, ekki skuldbundin til að veita styrki til seinni áfanga.
Húsafriðunarnefnd getur óskað eftir frekari gögnum og upplýsingum, en koma fram á umsóknareyðublaði, eftir því sem þurfa þykir áður en til úthlutunar kemur.
Við útfærslu á framkvæmdum skal hafa rit Húsafriðunarnefndar um viðhald og endurbætur friðaðra og varðveisluverðra húsa til hliðsjónar.
Húsafriðunarnefnd setur sem skilyrði að ráðgjöf og framkvæmdir séu unnar af fagmönnum sem hafi sérþekkingu á viðfangsefninu í hverju tilviki.
5. gr.
Greiðslur styrkja
Styrkir til ráðgjafar og áætlanagerðar eru greiddir þegar Húsafriðunarnefnd hefur fjallað um og samþykkt þær.
Styrkur til endurbóta á byggingum verður ekki greiddur út fyrr en 1/3 verks sem styrkur hefur verið veittur til er sannanlega lokið. Styrkur verður greiddur út þegar gerð hefur verið grein fyrir stöðu verkefnisins.
Styrkir til rannsóknarverkefna og gerðar bæja- og húsakannana og útgáfu þeirra eru greiddir þegar Húsafriðunarnefnd hefur fjallað um og samþykkt þær.
6. gr.
Eftirlit Húsfriðunarnefndar
Húsafriðunarnefnd hefur eftirlit með að styrkir til ráðgjafar og áætlanagerðar hafi verið notaðir til þess sem getið var í umsóknum. Styrkþegum er skylt að kynna fulltrúa nefndarinnar stöðu verksins sé þess óskað og afhenda nefndinni eintak af uppdráttum og áætlunum, nefndinni að kostnaðarlausu.
Húsafriðunarnefnd hefur eftirlit með að þær framkvæmdir sem hún styrkir séu viðunandi af hendi leystar og í samræmi við innsend gögn. Nefndin eða fulltrúi hennar skal eiga greiðan aðgang að vinnustað meðan á framkvæmdum stendur.
Húsafriðunarnefnd hefur eftirlit með því að styrkir til rannsóknarverkefna og gerðar bæja- og húsakannana og útgáfu þeirra hafi verið notaðir til þess sem getið er um í umsóknum. Styrkþegum er skylt að gera nefndinni grein fyrir stöðu verksins með áfangaskýrslu ekki síðar en ári eftir að styrk er úthlutað. Að verkinu loknu kynnir styrkþegi niðurstöður sínar fyrir nefndinni eða fulltrúa hennar.
Komi í ljós að styrk úr sjóðnum hafi ekki verið varið í tilgreindar framkvæmdir innan tveggja ára frá greiðslu hans eða vikið hafi verið frá upplýsingum í umsókn, skal styrkþegi endurgreiða styrkinn þegar í stað.
7. gr.
Upplýsingaskylda Húsafriðunarnefndar um Húsafriðunarsjóð
Húsafriðunarnefnd skal láta menntamálaráðherra, Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og Sambandi íslenskra sveitarfélaga í té lista yfir úthlutun styrkja þegar hann liggur fyrir. Ennfremur skal birta úthlutunarlista og yfirlit yfir greiðslurnar í ársskýrslu Húsafriðunarnefndar sem liggi fyrir ekki seinna en í mars ár hvert.
Samþykkt á fundi Húsafriðunarnefndar 2. október 2008.
Staðfest af menntamálaráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, 28. janúar 2009.
