Styrkumsóknir
LEIÐBEININGAR:
Umsóknarfrestur um styrki úr Húsafriðunarsjóði er árlega frá 15. október til 1. desember. Á þeim tíma er hægt að nálgast umsóknareyðublað á þessum vef.
Umsóknareyðublaðið, sbr. netumsókn hér til hliðar, skýrir sig að mestu leyti sjálft. Þegar umsóknareyðublaðið hefur verið fyllt út er smellt á SENDA hnappinn og fer þá umsóknin til Húsafriðunarnefndar til afgreiðslu.
Fullklára verður hverja umsókn og senda, þar sem ekki er mögulegt að vista hálfkláraða umsókn og byrja aftur seinna. Áður en umsókn er send, þ.e. smellt á SENDA hnappinn, er ráðlegt að prenta hana út, en að auki mun verða send staðfesting á því að umsókn sé móttekin.
HÉR er hægt að nálgast úthlutunarreglur, sem hafðar eru til grundvallar við úthlutun úr húsafriðunarnsjóði. Reglurnar voru staðfestar af menntamálaráðherra 28. janúar 2009.
