Húsafriðunarsjóður

Hlutverk Húsafriðunarsjóðs er skilgreint í 17. gr. laga um húsafriðun (104/2001). Hlutverk Húsafriðunarsjóðs er að veita styrki til viðhalds og endurbóta á friðuðum húsum og mannvirkjum. Heimilt er að veita styrki til viðhalds annarra húsa en friðaðra sem að dómi Húsafriðunarnefndar hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi. Sjóðnum ber að stuðla að byggingarsögulegum rannsóknum og útgáfu rita um þær.

 

Úthlutun úr Húsafriðunarsjóði

 

Á fundi sínum þann 2. mars 2010. samþykkti Húsafriðunarnefnd úthlutun styrkja úr Húsafriðunarsjóði fyrir árið 2010. Alls bárust 259 umsóknir og fengu 194 styrktarbeiðnir jákvæða afgreiðslu. Að auki er 36 styrkjum úthlutað samkvæmt ákvörðun Fjárlaganefndar Alþingis, þannig að í allt eru veittir 230 styrkir til ýmissa verkefna til varðveislu byggingararfsins. Sundurliðun verkefna má sjá á samantektarblaði og lista.

Greiðsla styrks til framkvæmda er háð því að unnið sé samkvæmt áætlun sem Húsafriðunarnefnd hefur samþykkt og leiðbeiningum sem nefndin hefur gefið út, sbr. ritröð um varðveislu, viðgerðir og endurbætur gamalla timburhúsa.

Styrkurinn verður greiddur inn á bankareikning eiganda eða aðstandanda hússins, þegar umsjónarmaður verksins eða starfsmenn Húsafriðunarnefndar staðfesta að a.m.k. þriðjungi verksins sé lokið.

Þriðjungur styrks til gerðar byggða- og húsakannana og annarra rannsóknarverkefna mun ekki verða borgaður út fyrr en áfangaskýrsla, sem Húsafriðunarnefnd samþykkir, hefur verið lögð fram.

 

 

Að öðru leyti er stuðst við reglur um úthlutun úr Húsafriðunarsjóði.








langnav



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica