Friðun húsa
Á Íslandi eru hús friðuð af tveimur ástæðum. Annars vegar vegna aldurs og hins vegar hús sem ráðherra hefur friðað, að fenginni tillögu frá Húsafriðunarnefnd.
Í lögum um húsafriðun segir m.a. að Húsafriðunarnefnd stuðli að varðveislu byggingararfs þjóðarinnar og metur hvaða hús er rétt að friða hverju sinni og gerir um það tillögur til menntamálaráðherra.
Samkvæmt sömu lögum eru öll hús á Íslandi friðuð sem byggð eru fyrir 1850 og allar kirkjur sem byggðar eru fyrir 1918.
Á landinu öllu eru nú 404 friðaðar byggingar. Af þeim eru 258 friðaðar vegna aldurs og 147 friðaðar með ákvörðun ráðherra eða sveitarstjórn skv. eldri þjóðminjalögum, nr. 52/1969.
Hér til vinstri er annars vegar hægt að sjá lista yfir öll friðuð hús á Íslandi og hins vegar kort sem sýnir loftmyndir af öllum friðuðum húsum.
