Beint í leiðarkerfi vefsins.
Gætt hefur misskilnings um það hvort hús séu friðuð eða vernduð, en á þessum hugtökum er grundvallar munur. Í lögum er gerður greinarmunur á friðun og verndun byggingararfsins. Annars vegar er um að ræða lög um húsafriðun 104/2001, þar sem kveðið er á um friðun húsa og hins vegar skipulags- og byggingarlög 73/1997, þar sem kveðið er á um hverfisvernd. HÉR er skrá yfir öll friðuð hús á Íslandi.
Lesa meiraUm Húsafriðunarsjóð er fjallað í III. kafla laga um húsafriðun (104/2001). Hlutverk Húsafriðunarsjóðs er að veita styrki til viðhalds og endurbóta á friðuðum húsum og mannvirkjum. Heimilt er að veita styrki til viðhalds annarra húsa en friðaðra sem að dómi Húsafriðunarnefndar hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi. Sjóðnum ber að stuðla að byggingarsögulegum rannsóknum og útgáfu rita um þær.
Birt hefur verið úthlutun úr Húsafriðunarsjóði árið 2010. Listann má sjá hér.
Lesa meira